Everyday dress - Sweater
Hið tvískipta Everyday dress sækir innblástur sinn í fatnað mæðra okkar og kvenna á sjötta áratugnum. Það er í senn fínlegt, kvenlegt, silkimjúkt og þægilegt. Fullkomið hvort heldur sem er í drykk með vinkonum, ferð á listasafnið eða vinnuna. Pils og peysu má nota í sitthvoru lagi en mynda saman fallega heild úr hágæða baby alpaca- og merino ull. Fringe Scarf og Essential Scarf koma í sömu litum og Everyday dressið og er einstaklega snoturt að bæta þeim við til að umbreyta ásýnd eða þegar þörf er á auka hlýju.
Everyday dress - Sweater - Black / S er í eftirpöntun og verður send eins fljótt og hún kemur aftur á lager.
Frí afhending með Dropp ef verslað er fyrir 16.000kr eða meira