AS WE GROW AGAIN

Kveikjan að As We Grow var flík sem gekk manna á milli og hélt hlýju í hópi ættingja og vina í meira en áratug og tengdi þannig saman fjölskyldur. Sagan veitti innblástur til að hanna gæðavörur með langan líftíma að leiðarljósi.
Í júlí bjóðum við upp á notaðar og endurbættar As We Grow flíkur á sérstöku verði. Frá og með deginum í dag og út júlí verður sérstök slá með notuðum As We Grow flíkum í verslun okkar þar gefst tækifæri til að eignast vandaðar flíkur sem eiga enn mörg ár eftir.
Einnig býðst viðskiptavinum að koma með notaða As We Grow flík í verslunina og fá í staðinn 20% afslátt af nýrri flík.
Frá upphafi hefur markmið okkar verið að skapa flíkur sem endast, ganga á milli kynslóða og eignast nýja eigendur. Við trúum því að góð flík eigi ekki að enda aftast í fataskápnum heldur halda áfram ferðalagi sínu, aftur og aftur ♻️
